Archive for March, 2005

Árshátíð 2005

Wednesday, March 30th, 2005

Árshátíð Þyts verður haldinn þann 16.apríl nk. kl.20.00 í Naustinu við Vesturgötu Reykjavík, húsið opnar kl.19 með fordrykk. Óhætt er að lofa frábærum mat og enn betri skemmtun í góðra vina hópi. Allir módelmenn, óháð því í hvaða félagi þeir tilheyra, eru boðnir velkomnir á svæðið.

Lesið meira um árshátíðina hérna…

Sérstaklega hvernig þið tryggið ykkur miða.

Myndasafn félagsins

Tuesday, March 22nd, 2005

Mynd úr myndasafniBúið er að taka myndasafn félagsins saman á einn stað og þar hafa myndirnar verið flokkaðar niður í albúm. Mun þetta auðvelda aðgengi að myndunum ásamt því að þægilegra verður að sýsla með myndirnar og fljótlegt verður að bæta við nýjum myndum í framtíðinni.

Myndasafnið telur 821 mynd í 29 albúmum í augnablikinu.

Hægt er að skoða albúmið hér