Fyrsti félagsfundur Flugmódelfélagsins þyts á nýju ári verður haldinn fimmtudaginn 5. janúar 2006 kl. 20.00 í Garðaskóla Garðabæ. Fjallað verður um rafknúin módel, rafmagnsmótora og rafhlöður. Á fundinum verða sýnd rafmknúin flugmódel, annað mótor sviffluga en hitt fjögura hreifla sprengivél. Eftir kók og prins verður sýnt myndband frá flugmóti á Englandi sem nokkrir Íslenskir módelmenn fóru á. Módelmenn hvattir til að koma með á fundinn ný eða hálfsmíðuð módel
Archive for December, 2005
Félagsfundur í Janúar
Monday, December 5th, 2005Jóla og nýárskveðja
Monday, December 5th, 2005Stjórn flugmódelfélasins þyts óskar öllum módelmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þakkar fyrir samstarfið á liðnu ári.
Undanfarin ár hafa félagar þyts mætt út á Hamranesflugvöll á gamlársdag og tekið síðasta flug ársins saman og vonum við að veðrið verið gott svo að sem flestir geti hvatt gamla árið með flugi út á Hamranesi á gamlársdag.