Archive for October, 2006

Aðalfundur

Saturday, October 28th, 2006

Aðalfundur flugmódelfélagsins þyts

Verður haldinn fimmtudaginn 23. nóv. 2006 kl. 20.00 í Bíósalnum (Þingsal 5) Hótel Loftleiða Reykjavíkurflugvelli.

Á dagskrá aðalfundar:

1. Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári.
2. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
3. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
4. Skýrslur nefnda.
5. Kosning formanns.
6. Kosning ritara og meðstjórnanda.
7. Kosning endurskoðenda.
8. Kosning í nefndir.
9. Tillögur og lagabreytingar.
10. Önnur mál.

Nú er tækifæri fyrir áhugasama félagsmenn að bjóða sig fram í gefandi og þroskandi félagsstörf fyrir flugmódelfélagið þyt.

Í kaffihléi verður fundargestum boðið upp á rjóma-/marsipan tertu.

Tómstundabandalag Hafnarfjarðar

Saturday, October 28th, 2006

Formaður Þyts hefur undanfarið setið fundi til undirbúnings stofnundar Tómstundabandalags Hafnarfjarðar ásamt nokkrum öðrum formönnum klúbba og tómstundafélaga í Hafnarfirði.

Það er ósk Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að stofnuð verði heildarsamtök tómstundarfélaga og klúbba í Hafnarfirði sem standa utan Íþrótta og Ólympíusambands Íslands.

Í Fjarðarpóstinum 26. okt. 2006 á bls. 7 er auglýsing um að Stofnfundur Tómstundabandalags Hafnarfjarðar verði haldinn þriðjudaginn 31. okt. n.k. og hefst kl. 20.00 í skátaheimilinu Hraunbyrgi, Hjallabraut 51.

Félög og klúbbar í Hafnarfirði eru hvött til að taka þátt í stofnun tómstundabandalags og stuðla að því að en frekari eflingu tómstundastarfs innan Hafnarfjarðar

http://www.fjardarposturinn.is/images/FP-pdf/FP-2006-40-skjar.pdf