Archive for May, 2007

Flugöryggisfundur

Tuesday, May 15th, 2007

Flugmálafélag Íslands heldur flugöryggisfund að Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 15.maí og hefst hann kl.20, allir flugáhugamenn eru boðnir velkomnir.

Fundarstjóri: Ágúst Guðmundsson
20:05 – 20:15 Opnun
20:15 – 21:00 Alvarleg flugatvik árið 2006 / Rannsóknarnefnd flugslysa
21:00 – 21:15 Kaffihlé
21:15 – 21:40 Tilkynningarkerfi og greining flugatvika. Endurnýjun á skírteinum/FMS
21:40 – Kvikmynd

Fyrirspurnir í lok hvers dagskrárliðar.

Kaffiveitingar í boði Flugmálastjórnar Íslands.
Allt áhugafólk um flugmál velkomið.

Flugmálafélag Íslands
Flugmálastjórn Íslands
Flugstoðir
Rannsóknarnefnd flugslysa
www.flugmal.is

Vöfflumótið nk. laugardag 5.maí

Thursday, May 3rd, 2007

Hið árlega Vöfflumót verður haldið laugardaginn 5.maí nk. og hefst stundvíslega kl.10. Félagsmenn Þyts eru hvattir til að fjölmenna því þetta er nokkuð sem engin ætti að láta fram hjá sér fara. Settir verða upp betri vettlingarnir og flugstöðinn og flugstöðvarsvæðið fær smá yfirhalningu fyrir komandi vertíð.

Einnig er farið að styttast í maífund Þyts en hann verður haldinn á Hamranesi. Nú er farið að styttast í kosningar en jafnframt þýðir það að Kríumótið er á næsta leyti.