Archive for April, 2009

Vöfflumót 2009

Tuesday, April 28th, 2009

Nú er komið að hinu árlega Vöfflumóti, það verður haldið laugardaginn 2.maí klukkan 10:00. Nú á að þrífa flugstöðinna okkar hátt og lágt og gera hana skínandi fína fyrir vertíðina í sumar. Spennandi verður að sjá hvaða tækni verður beitt við vöfflubaksturinn í ár.

Ef veður leyfir viljum við hvetja félagsmenn til þess að mæta með gömul flugmódel þ.e.a.s. flugmódel sem hafa verið að safna ryki í gegnum árin og kanski lítið verið flogið upp á síðkastið.

Staðsetning: Hamranesflugvöllur.

Eldsvoð á Hamranesflugvelli

Saturday, April 25th, 2009

Rafstöðin okkar brann í gær ásamt kofanum sem hýsti hana.
Slökkvilið og Lögregla komu á staðinn og einnig matsmaður frá
Tryggingamiðstöðinni, þannig að málið er í ferli. Næst komandi mánudagskvöld munn stjórn Þyts koma saman og fara yfir stöðuna.