Keppnisfyrirkomulag
Vínabrauðsmót
Helgina fyrir Páska hittast félagsmenn Flugmódelfélagsins þyts út í Flugstöð félagsins á Hamranesi til skrafs og ráðagerða. Hafa með sér kaffi á brúsa. (þar sem ekki er á þessum tíma búið að tengja vatns kerfi hússins) og hafa með sér nesti eins og vínarbrauð.
Þetta er eina mótið sem ekki verður frestað þótt veðrið sé óhagstætt. En ef veðrið er gott er upplagt að taka nokkur flug á Hamranesflugvelli.
Hamranesflugvöllur: 64°02’09.70′ N 21°56’56.78′ W
____________________________________________________________
KRÍUMÓT.
Kríumót er hástartskeppni F3B módelsvifflugvéla og er fyrsta keppnismót sumarsins í félagsstarfi Flugmódelfélagsins Þyts.
Þátttakendur í Kríumóti hittast gjarnan við Álverið í Straumsvík um morguninn mótsdaginn og halda þaðan kl. 10:00 áleiðis til Höskuldarvalla.
Á Kríumóti fagna félagsmenn komu vorboðanna eins og mótsnafnið ber með sér.
Mótið hefur undanfarin ár verið haldið á Höskuldarvöllum.
Hvar eru Höskuldarveller ?
Höskuldarvellir staðsetning: 63°57’09.54′ N og 22°06’13.50′ W
Til að komast til Höskuldarvalla er ekið út af Keflavíkurvegi við Vatnsleysuströnd og ekið eftir malarvegi merktan Keili, og ekið um 8 KM í austur átt að Höskuldarvöllum.
Hvað er hástartkeppni módelsvifflugvéla F3B ?
Í hástart svifflugs keppni F3B eru svifflugurnar dregnar á loft með spilvindu. Keppnisstaður þarf að vera sléttlendi þar sem von er á uppstreymi lofts, oft kallað termik bólur.
Keppninni er skipt niður í þrjár keppnis þrautir.
Í Fyrstu þraut þarf keppandi að halda svifflugunni á flugi ákveðinn langann tíma þar sem flest stig fást fyrir að vera sem næst tímamörkum hvorki of skamman tíma eða of langan tíma, með því að fljúga um loftið og fynna uppstreymi (termik bólur).
Tímataka hefst um leið og sviffluga sleppir spilvír og endar um leið og svifflugan lendir og þá helst sem næst merktu lendingarsvæði þar sem flest stig fást fyrir að vera sem næst miðju.
Í annari þraut á að fljúga hraðaflug alls fjóra 150 metra langa leggi milli A og B hliða.
Í þriðju þraut á að fljúga sem flesta leggi milli A og B hliða á 4 mínútum.
____________________________________________________________
Íslandsmót módel svifflugvéla í hástarti F3B og hangflugi F3F.
Íslandsmót í módelsvifflugi eru haldin á vegum Flugmálafélags Íslands.
Þetta er tveggja daga mót laugardag og sunnudag. Undanfarin ár hefur keppnin í F3B verið haldin á flugvellinum við Gunnarsholt og F3F á Hvolsfjalli.
Það fer eftir veðri hvort er keppt í hangflugi F3F eða hástarti F3B fyrri keppnisdaginn. Þáttakendur hafa oftast mætt á föstudagskvöldinu fyrir keppni og tjaldað á keppnisstaðnum.
Hangflug F3F
Í hangflugi módel svifflugvéla er flogið á brekkubrún fjalla þar sem vindur stendur beint fjallið og er þá flogið er í sterku uppstreymi. Hangmót fellur niður ef vindhraði er undir 4 m/s eða yfir 24 m/s, einnig ef vindur er yfir 45 gráðu skakkur á brekkubrún. Mesta lyftið er þegar vindur stendur beint á brekkubrún og mestur vindhraði er við brekkubrún.
Á brekkubrún þar sem keppnin fer fram eru sett um tvær markstangir með 100 metra millibili. Við marklínurnar eru hliðverðir sem gefa merki þegar svifflugan fer yfir marklínuna. Keppandinn stendur mitt á milli markana og hann eða aðstoðarmaður kastar svifflugunni út í hangið. Keppandinn hefur hálfa mínútu til að ná sem mestri hæð til þess að geta fengi sem mestan hraða inn í upphafshliðið A eða B. Flognir eru alls 10 leggir milli A og B marka og sá vinnur sem flýgur hraðast eða á skemstum tíma.
Brekkubrúnir eru mjög mismunandi að gerð, sumar lágar aðrar háar, inn til landsins eða út við sjávarsíðuna eða við vötn.
Helstu hangflugsstaðir sunnanlands:
Kambabrún í SA vindi
63°59’43.13 N 21°16’01.89′ W
Draugahlíðar við litlu kaffistofuna í V og N áttum.
64°03’05.56′ N 21°29’41.70′ W
Stefánshöfði við Kleyfarvatn í A og S áttum.
63° 56’13.99 N 21°59’12.70¨ W
Hlíðarendi í SSA-S og SSV áttum.
63°53’51.47′ N 21°28’26.28′
____________________________________________________________
Piper Cub mót.
Gula Piper Cub J3 flugvélin með svörtu eldingunni á hliðinni, hefur alltaf átt sér marga aðdáendur og margir smíðað Piper Cub flugmódel. Þeir koma allir saman með Piper Cub flugmódelin sín stór og smá til að lita Hamranes gult.
Gjarnan hafa flugmenn á fullvöxnum Piper Cub flugvélum komið á mótið og lent á Hamranes módelflugvellinum. En eins og Otto Tynes Piper Cub eigandi orðaði það svo skemmtilega um Piper Cub flugmódelin: ” Piper Cub flugmódelin eru eins og ungar fullvöxnu Piper Cub flugvélanna og auðvitað vilja fullvöxnu Piper Cub mömmurnar og pabbarnir líta eftir Piper Cub ungunum sínum á Hamranesi”.
____________________________________________________________
Fjölþrautamót.
Á Fjölþrautamóti Flugmódelfélagsins þyts er flugmönnum boðið að taka þátt í margskonar flugþrautum.
Stangar Markflug: Flugmenn reyna að fljúga mjóa frauðplast stöng um 1.5 metra háa. Flugmaður fær þrjár tilraunir í einu flugi til að hitta stöngina, sem komið hefur verið fyrir í um 1 – 2 metra fjarðlægð frá brautarenda. Tilraun telst vera flug framhjá stöng og skiptir þá engu í hvaða hæð módelið flýgur yfir eða framhjá stönginni. Flest stig fær flugmaður að hitta stöngina í fyrstu tilraun eða 300 stig. Í annari tilraun 200 stig. Í þriðju tilraun 100 stig. Þrautin er útsláttarþraut þannig að þeir sem jafnir eru að stigum reyna með sér aftur og stöngin lækkuð um helming.
Tímaflug: Þar er takmarkið að mæla í huganum tímalengd flugs og lenda sem næst tímatakmarkinu sem getur verið breitilegt, t.d. 1, 2, 3 eða 4 mínútur. Flugmaður fær til flugs ákveðinn tíma sem gefinn er upp í mínútum en hann fær ekki að hafa úr eða klukku. Sá sem lendir næst tímatakmarkinu vinnur. Tímataka hefst þegar módelið sleppir braut og lýkur þegar módelið snertir braut eða vællarsvæðið aftur. Við uphaf þrautar verur öllum þátttakendum samtímis gefin upp símalengdin. Hver sekúnta er eitt stig jafn mörg stig og heildartíminn í sekúntum t.d. 1 mínútu flug jafnt og 60 stig. Síðan reiknast eitt stig frá við hverja sekúndu sem upp á tímann vantar en tvö stig frá fyrir hverja sekúndu sem lent er umfram tímatakmarkinu.
Lendingarkeppni: Keppendur hafi hugfast að lendingarkeppni er hæfnisíþrótt, þar sem markmiðið er að sýna færni flugmanns til að lenda flugmódeli á fyrirfram ákveðinn hátt eða stað. Í lendingarkeppni eru þrautirnar (æfingarnar) þrjár og farnar þrjár umferðir, þannig a hver keppandi fær stigagjöf fyrir níu æfingar samtals. Keppandi flýgur eina umferð í gegnum allar þrjár æfingarnar hverja á fætur annarri og hvílir á milli umferða eða þar til röðin er komin að honum aftur. Keppendur eru beðnir um að fylgjast með röðinni og vera tilbúnir ða akbraut með módelið í gangi þegar keppandinn á undan er lentur.
Æfing 1. þessi æfing gefur mest 1000 stig. Lending á braut, sama hvar er, en menn fá mínusstig fyrir eftirfarandi frávik. Lending 2 metra utan brautar -100 stig. Undirskot -700 stig. Út af braut á hlið -500 stig. Fram af braut -400 stig. Ljót lending -200 stig. Aðflug óeðlilegt -300 stig.
Æfing 2. Þessi æfing gefur mest 1000 stig. Falleg snertilending (touch and go) dæmd af dómurum. Í þessari þraut á módelið að snerta ca. við Zeprann, renna fallega eftir miðlínu flugbrautar fimm til tíu metra, taka síðan í loftið aftur á aukinni inngjöf og beint í æfingu nr. 3. Lending utan brautar -1000 stig. Undirskot -700 stig. Fram af braut -400 stig. Ljót snertilending -200 stig. Aðflug óeðlilegt -300 stig.
Æfing 3. Þessi æfing er tekin í beinu framhaldi af æfingu tv-. Marklending á miðjum zeba gefur mest stig eða 3000. Stigagjöf fer eftir því hvar flugvélin lendir samkvæmt skema sem teiknað hefur verið á brautarendann. Lending telst hafa tekist þegar flugvélin hættir að “bomsa” eða hoppa. Hopp eða “boms” telst vera hærra en 15 cm. frá snertifleti flugbrautar. Mínusstig fyrir eftirfarandi frávik. Út af braut -200 stig. Fram af braut -400 stig.
____________________________________________________________
Heimsmeistarakeppni í Hangflugi F3F “Viking race”
Viking race keppnin er haldin annað hvert ár víða um heim, þegar ár endar á jafnri tölu.
2006 verður keppnin haldin á Skotlandi dagana 8. sept. til 15 sept. í Bishop og Lomond fjöllum “Kingdom of Fife” á austurströnd Skodlands, um 20 mílur norður af Edinborg.
Mjö mikill áhugi er fyrir þessari keppni erlendis og komast færri að en vilja. Haldin eru landsmót eins og Íslandsmót í hangflugi F3F þar sem keppendur öðlast rétt til þáttöku í Viking race F3F. Nokkrar þjóðir senda tvö lið í keppnina. það eru þrír keppendur í einu liði. Verðlaun eru veitt fyrir besta árungur liðs og bestan árangur einstaklings.
Með því að fara inn á Google Earth getið þið séð nákvæmlega hvar Viking race 2006 er haldin á Skodlandi:
Pointer 56gráður 12´57.85 N og 3gráður 19’04.28 W er Bishop Hil
Pointer 58gráður 12’14’36.99 N og 3gráður 18’08.38 W er West Lomond
Pointer 56gráður 14’44.34 N og 3gráður 13’26.80 W er East Lomond
Með því að fara inn á heimasíður mótshaldara sjáið þið nánar um Viking race 2006:
http://www.vikingrace2006.co.uk/
____________________________________________________________
Böðvar Guðmundsson formaður flugmódelfélagsins þyts.