Íslands mót

Íslandsmót í módelflugi eru haldin af Flugmálafélagi Íslands í umsjón Flugmódelfélagsins þyts.

Flugmódelfélagið þytur er eina módelfélagið á Íslandi sem er aðili að Flugmálafélagi Íslands.

Flugmódelfélagið þytur er eina módelfélagið sem getur haldið lögleg Íslandsmót eftir alþjóðlegum reglum Fédération Aéronautique Internationale FAI.

Félagar í Flugmódelfélaginu þyt geta tekið þátt Íslandsmótum og Alþjóðolegum mótum og fengið sérstakan “SPORTING LICENCE” passa útg. Fédération Aéronautique Internationale og Flugmálafélagi Íslands. Passin er með frímerki sem gefið er út árlega og stimplað af Flugmálafélagi Íslands. Sporting licence passinn er nauðsynlegur fyrir félaga sem vill taka þátt í erlendum mótum eða hnekkja meti þar sem keppt er eftir sportflugsreglum FAI.

Íslandmót sem Flugmódelfélagið þytur hefur haldið árlega eru undanfari þess að keppendur ávinna sér rétt að taka þátt í alþjóðlegum mótum og heimsmeistarakeppnum.

Comments are closed.