Hér er hægt að líta yfir það helsta sem gerðist árið 2000 og var fjallað um hér á heimasíðunni.
Flugmódelmenn í Flugmódelfélaginu Þyti
hittust á Hamranesi á Gamlársdag til að fljúga, spjalla og sprengja
Það var góð mæting á Hamranes á síðasta degi aldarinnar.
Margir flugu þótt kuldinn gerði verulega vart við sig og sumir mótórar
fóru bara alls ekki í gang. Jóel, nýjasti stjórnarmaður Þyts og
"sprengjusérfræðingur" sprengdi 10.000 kínverja með miklum látum
og var kveikjan fjarstýrð frá flugmódelsendi (að sjálfsögðu). Guðmundur
formaður kom með þrjá fulla kassa af gömlum módelblöðum í
flugstöðina, en þau eru gjöf til félagsins frá Gunnari Jónssyni. Eftir
að hafa kvatt síðasta módelár aldarinnar með köldu flugi, góðu spjalli
og skemmtilegum sprengjum fóru menn heim glaðir í sínu litla módelhjarta.
Formaður óskar félagsmönnum gleðilegra
jóla og minnir á árlegt gamlársflug á Hamranesflugvelli
Það er óhætt að segja að þetta 30 ára
afmælisár félagsins hafi verið athafnasamt og fyrir þá sem vilja er hægt
að skoða ársskýrslu félagsins (klikkaðu hér til að sjá hana) sem flutt
var á aðalfundi Flugmódelfélagsins Þyts 9. nóvember 2000 í Garðaskóla
í Hafnarfirði. Haldið var upp á afmæli félagsins með margvíslegum hætti
s.s. heimsmeti í flugi undir sjávarmáli, afmælisfagnaði þar sem margir
félagsmenn voru heiðraðir, frábærum afmælisflugdegi og fleiru. Ferð 10
félagsmanna til Corsford í Englandi á árlega flugkomu LMA í sumar var
stórfengleg og einnig heimsókn tuga félagsmanna á flugkomu Flugmódelfélags
Akureyrar í ágúst, en þar sáum við fyrsta módel þotuflug á Íslandi.
Mesta gleðiefnið er þó mikil fjölgun nýliða í módelflugi og vonandi
verður framhald á því á næsta ári. Á 30 ára afmælisaðalfundi
Flugmódelfélagsins Þyts þann 9. nóvember s.l. var brotið blað í
þátttöku félagsmanna í störfum fyrir félagið, en þar voru settar af
stað þrjár nýjar starfsnefndir og samtals eru nú 35 manns starfandi í
stjórn eða sitja í nefndum á vegum félagsins. Einnig var
samþykkt þar að Flugmódelfélagið
Þytur taki að sér framkvæmd og umsjón með F3F norðurlandamóti í
svifflugi að beiðni Flugmálafélags Íslands í bréfi frá 18. september
2000. Skipuð var sérstök framkvæmdanefnd til að hafa umsjón með undirbúningi
og framkvæmd mótsins. Ekki má gleyma mesta áhyggjuefni okkar þessa stundina
sem er hugsanlegir nágrannar við Hamranes. Við þurfum alvarlega að fara að
huga að nýju svæði fyrir okkar starfsemi eftir 2010 og þar verða menn að
vera vakandi. Ég vill þakka félagsmönnum í Þyt og öðrum módelmönnum
fyrir einstaklega skemmtilegt og lifandi módelár og vona að okkur takist að
halda dampi í þessum efnum á næsta ári. Að lokum minni ég á gamlárs
uppákomuna okkar og hlakka til að sjá sem flesta þar, hvort sem flugveður
verður eða ekki.
Guðmundur
G. Kristinsson, formaður Flugmódelfélagsins Þyts
![]()
![]()
Búið er að taka fyrir bréfið okkar hjá
bæjarráði í Hafnarfirði
Borist hefur svar við bréfi (þú getur skoðað bréfið með
því að smella hér.) sem Flugmódelfélagið Þytur sendi
bæjarráði Hafnarfjarðar varðandi breytingar á skipulagi í Kapelluhrauni
og úthlutun svæða fyrir fjarstýrða bíla og golf. Efni bréfsins er
svohljóðandi:
"Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur falið mér undirrituðum að svara fyrirspurn þinni um fyrirhugaðar lóðir í nágrenni flugvallar Þyts. Vinna við endurskoðun aðalskipulags stendur yfir. Í þeirri vinnu verður tekið á fyrirspurnum sem liggja fyrir um starfsemi á þessu svæði. Í aðalskipulagsvinnu er vani að hafa samráð við hagsmunaaðila eins og í þessu tilfelli. Afrit af bréfi þínu er komið til skipulagsstjóra og þ.a.l. vitneskja um áhyggjur ykkar. Virðingarfyllst. Kristinn Ó Magnússon, bæjarverkfræðingur."
Stjórn Þyts mun í framhaldi af þessu hafa samband við skipulagsstjóra Hafnarfjarðar og fylgjast með því hvernig þessi mál munu þróast á næstu mánuðum. Eins og sést á þessu máli, þá er byggð og athafnastarfsemi í Hafnarfirði að þróast í suðurátt og við verðum á næstu árum að skoða möguleika á nýjum stað fyrir okkar starfsemi. Hugmyndir hafa verið uppi um samstarf við Svifdrekamenn um svæði sem gæti verið aðeins sunnar í Kapelluhrauninu. Ekki má heldur gleyma umræðunni um flugvallarstæði fyrir nýjan innan landsflugvöll, en þar er einn valkosturinn staðsetning í Kapelluhrauni. Samkvæmt nýjustu upplýsingum virðast SBKL (fjarstýrðir bílar) ætla að sækja um svæði við go kart brautina í Njarðvík og ef það yrði þurfum við líklega ekki að hafa áhyggjur. Allir félagsmenn í Þyt þurfa að vera vakandi fyrir nýjum valkostum í þessum efnum og koma tillögum og upplýsingum sem þeir hafa til stjórnar félagsins.
![]()
Félagsfundurinn hjá Gæslunni heppnaðist
vel!
Félagsfundur Þyts sem haldinn í boði Landhelgisgæslunnar var
góður og má þar t.d. vitna í umsögn Ágústar Bjarnasonar á póstlistanum
"Það var góður fundur hjá Þyt í gær! Jón Erlendsson tók á móti okkur hjá
Landhelgisgæslunni og sýndi okkur flugvélakost Gæslunnar. Jón var greinilega
á heimaslóðum, því við fengum að skoða gripina hátt og lágt. Jón vissi
auðvitað allt um hreyflana og fleira sem hann sýndi okkur. Þetta var mjög fróðlegt og ánægjulegt".
Við þökkum Jóni að sjálfsögðu fyrir þessa skemmtilegu uppákomu.
![]()
Félagsfundur hjá
Flugmódelfélaginu Þyti verður fimmtudaginn 7. desember kl. 20:00 í
flugskýli Landhegisgæslunnar
Næsti félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 7. desember n.k. í
Flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjarvíkurflugvelli (skýli 2).
![]()
![]()
Jólagleði var hjá smíðavinum föstudaginn
1. desember kl. 19:00
Árleg jólagleði smíðavina í Hafnarfirði var haldin í
smíðaaðstöðu þeirra föstudaginn 1. desember. Margir mættu og var
snæddur saman matur "pizza af bestu gerð" og menn fengu sér bjór
eða aðra drykki. Stemmningin var góð og sýndar voru skemmtilegar
vídómyndir af afastráknum hans Björgúlfs, partýmyndir frá flugkomu
Flugmódelfélags Akureyrar ásamt skemmtilegum flugdirfskumyndum og fleiru.
Smíðavinir fá bestu þakkir fyrir skemmtilega uppákomu.
![]()
![]()
Aðalfundurinn samþykkti stefnumótun um
markvissari leiðir
30 ára afmælisaðalfundur flugmódelfélagsins Þyts var haldinn í
Garðaskóla fimmtudaginn 9. nóvember 2000. Mjög góð mæting var á fundinn
og fram fóru líflegar umræður um fjölbreytt málefni. Þar var fjallað um nýja
stefnumótun í starfi félagsins. Samþykkt var stofnun þriggja nýrra
starfsnefnda í viðbót tveggja sem fyrir voru. Þessum starfsnefndum er
ætlað að hafa umsjón með ákveðnum þáttum í starfi félagsins og með
þeim á starfið að verða markvissara. Einnig var samþykkt að standa fyrir
framkvæmd á F3F norðurlandamóti í hangi á svifflugum á næsta ári og
kosin sérstök framkvæmdanefnd til að hafa umsjón með framkvæmd mótsins.
Upplýsingar um nýkjörna stjórn, samþykktar tillögur og skipun aðalfundar
í nefndir má sjá með því að smella hér.
![]()
Úthlutun á svæði fyrir smábíla og golf í Kapelluhrauni.
Eins og komið hefur fram á félagsfundi og á póstlistanum, þá hafa margir áhyggjur af úthlutun á svæði fyrir golf og fjarstýrða bíla í Kapelluhrauni.
Rætt var við Erlend hjá skipulagsdeild Hafnarfjarðarbæjar og staðfesti hann að verið væri að ræða þetta hvor tveggja. Í framhaldi
af því var sent bréf til bæjarráðs Hafnarfjarðar með fyrirspurn um þessi mál og
þar komið jafnframt á framfæri áhyggjum okkar af öryggismálum. Beðið er
eftir svari frá bæjarráði sem vonandi kemur fyrir aðalfundinn þann 9. nóvember. Fyrir þá sem vilja sjá bréfið, er hægt að fá það fram á fréttasíðu félagsins á netinu
með því að smella hér.
![]()
30.
ára afmælis aðalfundur Flugmódelfélagsins Þyts verður haldinn fimmtudaginn 9. nóvember
Dagskrá:
1.
Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári, 2.
Reikningar lagðir fram til samþykktar, 3. Fjárhagsáætlun og ákvörðun
félagsgjalda, 4. Skýrslur nefnda.
Kaffihlé:
Boðið er upp á kaffi, gosdrykki og tertur í tilefni 30 ára afmælis
félagsins..
5.
Kosning formanns samkvæmt ákvæðum 7.gr., 6. Kosning ritara,
gjaldkera og meðstjórnenda samkvæmt ákvæðum 7.gr., 7. Kosning
endurskoðenda, 8. Kosning í nefndir, 9. Tillögur og
lagabreytingar, 10. Önnur mál
Fundarstjóri er Pétur Hjálmarsson
Stjórnin
(Smellið
hér til að fá nánari upplýsingar um uppstillingu í stjórn og
nefndir og tillögur)
![]()
Félagsfundur verður kl. 20:00 í Garðaskóla fimmtudaginn 5. október
Á dagskrá er aðalfundur í nóvember, vetrarstarfið, Norðurlandamót í F3F á Íslandi, kynning á nýrri vídeómynd frá flugkomu LMA í Corsford og önnur mál. Félagar eru kvattir til að mæta og taka þátt í að leggja grunn að öflugu vetrarstarfi.
![]()
Aðalfundur, vetrarstarfið, Skjár 1 og
tvö ný myndbönd
Fyrsti félagsfundur Þyts verður fyrsta fimmtudag í október og
aðalfundur og stjórnarkosingar verða í nóvember. Tímabært er að
fara að skoða hvort einhverjir stjórnarmenn ætli að hætta og þá hverjir
koma í staðinn. Þetta ár hefur verið viðburðarríkt og haldið hefur
verið upp á 30 ára afmæli félagsins og 10 ára afmæli flugstöðvar með
margvíslegum hætti. Sumir hafa lagt á sig mikla vinnu við hinar ýmsu
uppákomur og hefur þeim verið þakkað áður hér að neðan fyrir vel unnin
störf. Tveir aðilar hafa verið duglegir í sumar að sjá um flugstöðina
okkar (Andrés og Elli) og er við hæfi að þakka þeim þetta frábæra
framlag sem að mestu hefur verið unnið á bak við tjöldin án þess að
haft hafi verið hátt um það. Félagið okkar stendur og fellur með framlagi
einstakra félagsmanna og þetta árið hafa margir lagt hönd á plóginn og
starfað vel að ýmsu málum. Böðvar hélt utanum flugdaginn ásamt stórum
hópi félaga, Steinþór og félagar lögðu grunn að skemmtilegum
afmælisfagnaði, Björgúlfur og Skjöldur sáu um skipulag fyrir Corsford
ferðina, Arnar lagt grunn að heimasíðunni okkar sem alltaf er að batna og
Guðmundur formaður hefur þar lagt grunn að skemmtilegri myndasíðu sem
margir hafa notið vel og hann er einnig á fullu með afmælisblað félagsins
sem er komið vel á veg og verður gefið út í vetur. Við fengum góða
umfjöllun á Stöð 2 og þar mátti lesa í gegnum módelsportið hversu góð
stemmning hefur verið í félagsstarfinu og fór Balsabandi okkar á kostum.
Næsta mánudag verður fjallað um módelsport og fleira í flugí í
þættinum mótór á Skjá 1. Gefin hafa verið út tvö myndbönd sem hafa
verið til sölu hjá Þresti, annað frá 30. ára flughátíðinni í sumar og
hitt sem er að koma út er myndband frá ferðinni til Corsford í sumar.
Stefán Matthíasson félagi okkar klippti og hljóðsetti bæði þessi
myndbönd og hefur tekist vel til. Bæði þessi myndbönd verða til sölu hjá
Þresti.
![]()
![]()
Skemmtilegt útsölukvöld hjá Þresti
Þröstur Gylfason hefur nú í nokkurn tíma boðið upp á
þjónustu þar sem hægt er að kaupa margt til módelsmíða. Hann var með
útsölukvöld fimmtudaginn 14. september og var gaman að kíkja og hitta þá
mörgu félaga okkar sem litu við. Við módelmenn þökkum fyrir þessa
þjónustu og hvetjum okkar félaga til að eiga viðskipti við Þröst. Hann
er með góða vöru og oftar en ekki á sambærilegu verði og erlendis.
![]()
![]()
Síðkjólakvöld Flugmálafélagsins
verður föstudaginn 22/9
Föstudaginn 22. september verður Flugmálafélagsdansleikur í Sunnusal Hótel Sögu og
opnar húsið kl 19,00.
Með þessum dansleik er verið að gera tilraun til að endurvekja gamla hefð í starfsemi FMÍ.
Ásamt því að borða góðan mat verður ýmislegt til skemmtunar og góðir gestir
heiðra samkomuna. Má nefna Brendan O'Brian sem margir þekkja úr þáttaröðinni
Fligthline á Discovery. Miðasala er hafin í húsi Íslenskra Einkaflugmanna á Rvíkflugvelli á milli 18
og 21 á kvöldin. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Björgúlfi í
síma 8995792.
![]()
![]()
Mikið flogið, öryggismál og
viðburðaríkt ár.
Litið var við á Hamranesi seinnipartinn síðasta
sunnudag og þar var Pétur Hjálmarsson að fljúga glæsilegum nýjum PT 19.
Þetta er stórglæsileg vél og langt síðan sést hefur jafn falleg
"scala" vél fljúga á Hamranesi. Margir voru að fljúga þennan
fallega sunnudag og sagðist Pétur hafa talið um 18 vélar þegar mest var.
Þetta er til merkis um þá drift sem er í starfinu, en margir nýir hafa
komið inn á þessu ári. Flugmódelskóli Þyts er farinn að skila tekjum, en
mest um vert er að geta boðið upp á kennslu fyrir þá sem eru að byrja.
Guðmundur formaður og meistarasmiðurinn Skjöldur hafa verið að kenna
undanfarið og nýlega bættist Jóel við. Það þarf að fjölga þeim sem
taka að sér að kenna og áhugasamir eru beðnir að hafa samband við
Guðmund á e-mail skoli@thytur ef þeir
vilja bjóða sig fram til kennslu. Þytur á í dag tvær kennsluvélar og
tvær tölvustýrðar fjarstýringar, Futapa og JR. Allir geta tengt sína
stýringu við þessar með streng. Nokkrar stórar og fallegar vélar hafa
komið harkalega við jörðina síðustu vikur og síðast fór Extran hans
Rafns. Áður hafði Steinþór misst Sukoinn sinn á flugkomu Akureyringa og
sá atburður var hressileg ámynning um að öryggismál á stærri samkomum
verða að vera í lagi. Þessi mál voru tekin alvarlega á 30 ára
afmælisflugkomu Þyts, en þar var mikið flogið eða um 60-70 flug án þess
að nokkuð kæmi fyrir. Þetta afmælisár hefur verið viðburðarríkt og
langt síðan jafnmargir hafa verið að fljúga, jafnmargir viðburðir hafa
verið í gangi og jafnmargir nýir komið að fljúga.
![]()
![]()
F3B hástartmót á svifflugum í Gunnarsholti laugard. 19. ágúst
Hér eru úrslit fyrir F3B hástart
Ákveðið er að mótið fari fram á flugvellinum í Gunnarsholti laugardaginn 19. ágúst og hefjist kl. 10,30. Ekið er austur fyrir Hellu og upp afleggjaran að Gunnarsholti, völlurinn er á hægrihönd rétt við veginn. Við höfum leyfi frá Landgræðslunni að tjalda fyrir þá sem það vilja. Einhverjir munu mæta á föstudagskvöld og gista.
Piper Cup mótið verður á Hamranesi miðvikudag kl. 19:00
Hið árlega " PIPER CUB" mót verður á Hamranesi miðvikudaginn16. ágúst og hefst kl: 19.00. Ég hvet alla Cupara til að mæta og fylla loftið af þessum fallegu gulu flugvélum.Þessu móti var frestað vegna veðurs.
![]()
![]()

Fyrsta þotuflugið hér á landi var á
flugkomu Flugmódelfélags Akureyringa 12. ágúst 2000
Enn einn stórviðburðurinn átti stað á flugkomu
Flugmódelfélags Akureyringa laugardaginn 12. ágúst s.l. Þá flaug í fyrsta
skipti hér á landi þotumódel með þotuhreyfli "Kangaroo" í eigu
Karls Hamilton Flugmódelfélagi Akureyrar og Jón Pétursson frá
flugmódelfélaginu Þyt var flugmaður. Fyrsta flugið var nánast fullkomið
þó litlu mætti muna í flugtakinu þegar þotan tók krappa hægri beygju
strax eftir flugtakið. Jón sagði eftir flugið að trimma hefði þurft
þotuna mikið til vinstri og niður eftir að hún var komin í loftið og
það væri líklega ástæðan fyrir þessari hægri beygju í flugtakinu. Hann
sagði jafnframt að mjög gott væri að fljúga þotunni og að hún væri
mjög vel smíðuð. Allir módelmenn á Íslandi óska Karli Hamilton og Jóni
Péturssyni til hamingju með þennan stórkostlega viðburð. Flugdagurinn var
að öðru leiti mjög vel heppnaður og taldi Kjartan hjá Flugmódelfélagi
Akureyrar um 30 módel á staðnum. Mjög stór hópur módelmanna kom að
sunnan og gisti stærsti hluti þeirra í tjöldum og í húsi Flugmódelfélags
Akureyrar sem staðsett er við glæsilegan flugvöll félagsins að
Melgerðismelum í Eyjafirði. Eftir skemmtilegan flugdag var grill sem
Akureyringar sáu um og eftir það skemmtu men sér fram eftir nóttu.
Þytsfélag sem mættu á svæðið þakka fyrir glæsilegar móttökur og
skemmtilegan dag í boði Flugmódelfélags Akureyra.
![]()
![]()
Flugkoma í Múlakoti og á Akureyri og
Pilon Race 9. ágúst
Við bendum öllum módelmönnum á Pilon Race sem verður miðvikudaginn 9. ágúst á Hamranesi, árlega flugkomu í Múlakoti um Verslunarmannahelgina og árlega flugkomu
Flugmódelfélags Akureyrar helgina 12.-13. águst (næstu helgi eftir Verslunarmannahelgina). Halda á Íslandsmót í módelsvifflugi helgina 19 til 20 ágúst. Staðsettning
kemur til með að ráðast af veðurútliti
![]()
![]()

RISAFLUGKOMA Á HAMRANESI SUNNUDAGINN 30.
JÚLÍ
Haldin var Risaflugkoma samkvæmt dagskrá
sunnudaginn 30. júlí. "Themað" var módel í stærri kantinum, en margir
aðrir mættu með sínar vélar þó ekki væru þær risavélar. Guðmundur G.
Kristinsson formaður bauð upp á pulsur og gos fyrir þá sem mættu og var
góð stemmning í pulsuspjallinu. Skjöldur mætti með 1/3 Piper Cup og alltaf
er jafn tignarlegt að sjá hann fljúga. Rafn flaug Extrunni með miklum sóma
og sjaldan sem jafn glæsilegt listflug hefur sést.

STÓRKOSTLEG FLUGMÓDELSÝNING Á COSFORT
Félagar í
flugmódelfélaginu Þyt sem heimsóttu flugsýninguna á Corsfort í Englandi helgina 14.-17. júli eru
komnir heim.
Það er varla til lýsingarorð yfir þessa ferð og þá upplifun sem
þátttakendur urðu fyrir þessa helgi. Á laugardeginum voru menn agndofa yfir
fjölda og stærð módela og eftir dagskrá dagsins sáum við eitt
stórkostlegasta listflug sem nokkurntíma hefur sést í loftinu. Við munum
taka saman vídeómyndband og ljósmyndir sem fara á netið á næstu vikum.
LMA menn tóku svo vel á móti hópnum frá Íslandi að við héldum á
tímabili að við værum frá annari plánetu. Við fengum einir gesta (það
voru um 20.000 gestir) að fara inn fyrir öryggisgirðingar til að skoða
módel og taka myndir og hópurinn fékk vægast sagt skemmtilega viðurkenningu
í hófi LMA á laugardagskvöldinu. Ég vil sérstakelga þakka Björgúlfi
Þorsteinssyni fyrir undirbúning og frábæra fararstjórn, og honum og Skyldi
Sigurðssyni fyrir að hafa undirbúið jarðveginn fyrir ári með samböndum
við alla helstu lykilmenn mótsins. Menn hjá LMA bera greinilega mikla
virðingu fyrir Skyldi og hann þurfti bara að veifa LMA merkinu sínu til að
allar dyr opnuðust. Ég vil einnig þakka einstaklega skemmtilegum
ferðafélögum fyrir einhverja bestu daga sem ég hef upplifað. Allir sem fóru
í þessa ferð stefna á að fara aftur á næsta ári og mikill áhugi er að stækka hópinn um
helming og taka með þrjár til fjórar flugvélar. Þetta mál ræðum við
síðar.
Bestu kveðjur - Guðmundur G. Kristinsson, formaður Flugmódelfélagsins Þyts.
![]()
![]()
LENDINGARKEPPNI FÉLL NIÐUR
Þann 4. júlí átti að vera
lendingarkeppni á Hamranesflugvelli, en Björn sem átti að hafa umsjón með
henni var búinn að tilkynna til stjórnar að hann gæti ekki séð um hana.
Ekki fékkst annar aðili til að hafa umsjón með lendingarkeppninni og því
miður láðist okkur að tilkynna um frestun hér á Daglegum fréttum
Þyts.
![]()

FLUGHÁTÍÐ 2000 - EINSTÖK UPPLIFUN
Ég óska Flughátíðarnefndinni til hamingju með undirbúning og framkvæmd á 30 ára afmælisflughátíð Flugmódelfélagsins Þyts s.l. sunnudag. Í nefndinni voru Böðvar Guðmundsson sem formaður hennar og fulltrúi stjórnar Þyts og með honum voru Ólafur Sverrisson, Axel Sölvason, Ásgeir Long, Ágúst Bjarnason, Kristján Antonsson og á seinni skipunum bættist við Björgúlfur Þorsteinsson. Þessir aðilar fá bestu þakkir fyrir vel unnin störf og einnig nokkrir aðrir s.s. Sigurður Júliusson og fjölskylda fyrir umsjón með veitingasölu, Pétur Hjálmarsson fyrir frábær störf við kynningar og lán á tækjabúnaði og ekki síst allir hinir sem komu með sín módel til sýnis og/eða flugs. Einstök upplifun er líklega besta lýsingin á því sem fór fram og þeir sem heimsóttu okkur fengu talsvert fyrir sinn snúð. Vænt þótti mér um orð Ólafs Sverrissonar sem sagðist aftur vera orðinn heltekinn af sportinu og einnig að sjá
Axel Sölvason og Ásgeir Long komna aftur í hópinn.
Böðvar Guðmundsson fórnaði Piper Cup vélinni sinni í langflugi sem átti að vera til Hellu frá Hamranesi og aftur til baka, en hún missti flugið í Svínahrauni og skemmdist talsvert. Hann átti einnig hugmyndina að fluginu í Hvalfjarðargöngunum og bæði útvegaði vélina og flaug. Þesssar uppákomur ásamt Balsabandinu og umfjölluninni í Íslandi í dag og á Rás 2 kom okkar félagsskap á framfæri sem skemmtilegum, en jafnframt faglegum hópi áhugamanna í fjarstýrðum flugmódelum.
Ég spurði nokkra sem voru á flughátíðinni 1992, um það hvernig þessi 30 ára afmælishátíð hefði verið og allir voru sammála um að þessi hefði tekist jafnvel og sú fyrri, en skemmtilegra hefði verið að hafa flugdagskrána opna eins og gert var núna. Opin dagskrá væri skemmtilegri fyrir þátttakendur í fluginu.
Tæknileg umgjörð og öryggismál voru frábær og ég hafði gaman að því að sjá tíðni ljósatöfluna sem skannaði allar opnar tíðnir. Svona umhverfi vekur öryggiskennd hjá þeim sem eru að fljúga og er stór hluti af þeirri ástæðu að engin vél skemmdist.
Það var gaman að sjá hversu afslappaðir gestirnir voru og sumir dvöldu hjá okkur í marga klukkutíma.
Ég tók um áttatíu myndir á sunnudaginn og flestar þeirra eru af flugmönnum með módel, en allar þessar myndir verða komnar inn á heimasíðuna eftir nokkra daga. Markmiðið er að á heimasíðuna verði safnað öllum módelum sem fara í loftið hjá félögum í Þyt og leggja þar grunn að flugsögu félagsins þar sem hægt verði eftir áratugi að fletta í gegnum hundruði ef ekki þúsundir véla.
Með kveðju f.h. stjórnar Flugmódelfélagsins Þyts
Guðmundur G. Kristinsson, formaður Flugmódelfélagsins Þyts
![]()
Frestun á Pilon Race móti á Hamranesi
miðvikudaginn 14. júní
Vegna mistaka við undirbúning verður að fresta Pilon Race móti því sem
átti samkvæmt mótaskrá Þyts að vera á Hamranesflugvelli í kvöld
miðvikudaginn 14. júní. Við látum vita seinna af nýrri dagsetningu fyrir
mótið. Engu að síður væri gaman að hittast í kvöld miðvikudaginn 14.
júní og setja upp einhverja skemmtilega flugkomu s.s. lendingarkeppni (eða
bara að hittast og fljúga). Ég verð á staðnum kl. 20:00 og ef einhverjir
áhugsamir eru til í að mæta og aðstoða við flugkomu í kvöld eru þeir
velkomnir á staðinn.
Guðmundur G. Kristinsson - 89 31701
![]()
Velheppnuð Flotflugkoma Flugmódelfélags
Suðurnesja
Mig langar til þess að þakka félögunum í Flugmódelklúbbi Suðurnesja fyrir
flugkomuna á uppstigningardag. Aðstaðan er góð þarna í Sandvík, aðkoman auðveld og vatnið alveg tilvalið í
þetta, grunnt og hæfilega stórt. Ef við hefðum ekki þessa klúbba, eins og Þyt, Akureyri og Suðurnes sem eru
duglegir að halda keppnir og flugkomur, væri þetta ansi snubbót. Það eru einmitt þessi mót sem hvetja menn til þess að klára nýsmíðina og blása rykið
af þeim gömlu. T.d sá ég Jón Péturs fljúa Supermarin á Flotflugkomunni,
vél sem ekki hefur flogið í 8 eða 9 ár og var unun á að horfa. Ég vil hvetja ykkur til þess að fara yfir mótaskrárnar hjá klúbbunum og færa
inn á dagatalið í eldhúsinu, þau mót sem þið hafið áhuga á. Bjöggi.
![]()
Úrslit í Kríumóti Þyts 2000
Kríumótið var með þeim betri sem ég man eftir nú í seinni tíð, 8 keppendur
og 11 til viðbótar sem; dómarar, tímaverðir, spilmenn, klapplið og svo má
lengi telja. Veðrið lék við okkur og allir í vorhug. Það má segja að atburður eins og þessi komi mönnum í gang, svona í upphafi
tímabilsins og er þá tilganginum náð. Það var einn af stofnfélugum Þyts,
Hörður Hjálmarsson heitinn, sem átti hugmyndina að þessu Kríumóti einmitt
til þess að hvetja menn til þess að hlaða batteríin og ljúka við þessa einu
límingu sem eftir var. Mér var tjáð að mót þetta sé upphaflega, frá því um
1976 og bið ég þá sem vita betur að leiðrétta mig. Mig langar til þess að þakka Frímanni fyrir undirbúningin og Arnari fyrir
góða mótstjórn, einnig hjálparkokkunum okkar (sumir ekki háir í loftinu) og
svo keppendum fyrir drengilega keppni. Með þakklæti fyrir góðann dag, Bjöggi 1 sæti. Rafn Th., 2 sæti. Böðvar Guðm., 3 sæti. Steinþór,
4 sæti. Björgúlfur, 5 sæti. Frímann, 6 sæti. Guðjón,
7 sæti. Þröstur Gylfason og 8 sæti. Hannes.
![]()
30 ára afmælisferð flugmódelmanna
til Corsford (London) 13.-16. júlí
Á félagsfundi 4. maí s.l. var mikið rætt um hópferð á risaflugkomu í
Bretlandi 13.-16. júlí. Nokkrir fóru á þessa flugkomu á síðasta ári og
var sýnt myndband frá ferðinni á einum félagsfundi Þyts í vetur. Það
sem bar fyrir augu á myndbandinu var í einu orði stórkostlegt og mikill
áhugi fyrir því að stór hópur fari saman á þessa risaflugkomu á 30.
ára afmælisári Þyts. Nú þegar hafa skráð sig átta manns í þessa ferð
og aðrir átta eru alvarlega að skoða þátttöku. Þeir sem vilja skrá sig
geta haft samband við Björgúlf í síma 8995792, en gengið verður
fljótlega frá pöntun fyrir hópinn. Kostnaður við flug og gistingu verður
ekki undir kr. 25-30.000 (tala án ábyrgðar).
![]()
Félagsfundur var haldinn í Garðaskóla
fimmtudaginn 4. maí kl. 20
Síðasti félagsfundur vetrarins var haldinn í Garðaskóla og þar var
gengið frá mótaskrá fyrir sumarið 2000, ákveðið að reyna að fá
Andrés til að sjá um rekstur og umsjón með flugvelli og húsi, Ágúst kynnti
dagskrá 30 ára afmælisflugdagsins 25. júní og þeim framkvæmdum sem
þörf er á fyrir daginn, rætt var um sameiginlega ferð Þytsmanna á flugkomu í Bretlandi
13.-16. júlí í sumar og að fundi loknum var flogið lítilli þyrlu sem
smíðuð er til flugs innanhúss. Mæting var þokkaleg, en líklega hafa ekki
allir verið búnir að fá tilkynningu um fundinn í pósti.
![]()
![]()
Glæsilegur og eftirminnilegur 30 ára afmælisfagnaður 7. mars
Sérstakur afmælisfagnaður vegna 30 ára afmælis Þyts og 10 ára afmælis
flugstöðvar á Hamranesi var haldinn 7. mars s.l. á Gaflinum í Hafnarfirði. Þar
voru fjórir nýir heiðursfélagar heiðraðir og margir félagar sem tekið hafa þátt í 30 ára starfi félagsins
fengu viðurkenningar. Í undirbúningsnefnd fyrir afmælisfagnaðinn voru Steinþór Agnarsson og Sigurður
Júlíusson og veislustjóri var Björgúlfur Þorsteinsson. Þeim eru
þökkuð vel unnin störf að þessari skemmtilegu uppákomu.
Þeir sem fengu afhentan heiðursskjöld voru Ólafur Sverrisson, Axel Sölvason, Ásgeir Long og Birgir Sigurðsson. Sérstaka heiðursviðurkenningu fékk eini stofnfélaginn á afmælisfagnaðinum, Jón Pétursson. Viðurkenningu fyrir framlag til félagsmála fengu Ágúst Bjarnason og Pétur Hjálmarsson, viðurkenningu fyrir framlag til svifflugs fengu Frímann Frímannsson og Hannes S. Kristinsson, viðurkenningu fyrir framlag til fræðslu fékk Kristján Antonsson, viðurkenningu fyrir framlag til tækni fékk Rafn Thorodsen, viðurkenningu fyrir framlag til Flugmálafélagsins fékk Björgúlfur Þorsteinsson, viðurkenningu fyrir framlag til módelsmíði fékk Skjöldur Sigurðsson, viðurkenningu fyrir framlag til heimasíðu fékk Arnar B. Vignisson og viðurkenningu fyrir framlag til árangurs í flugi fékk Böðvar Guðmundsson.
Allir aðgöngumiðar voru númeraðir og því einnig happdrættismiðar. Hér má sjá þegar Sigurður Júlíusson stjórnarmaður efhendir vinningana:
Afmælisfagnaðurinn þótti takast með afbrigðum vel og mættu yfir 50 manns og tóku þátt í skemmtilegri kvöldstund. Hljómsveitin Balsabandið var aðalskemmtiatriði kvöldsins, en meirihluti hennar situr í stjórn félagsins og allir eru virkir módelmenn. Einnig komu fram tvær klassískar söngkonur sem tóku nokkur lög og þóttu þær setja svip á kvöldið.
![]()
Afmælisrit í tilefni 30 afmælis félagsins
Í tilefni afmælisins verður gefið út glæsilegt afmælisrit þar sem fjallað verður um sögu félagsins, byggingu flugbrautar og flugstöðvar, 30 ára þróun í módelflugi hjá félaginu og margt fleira. Ritstjóri afmælisritsins er Guðmundur G. Kristinsson. Aðilar með efni í ritið eru beðnir að hafa samband við ritstjóra á töpvupósti
kolaport@islandia.is eða í síma 8931701/5542684.
![]()
![]()
Fjórir nýir heiðursfélagar
Stjórn Þyts hefur tekið samhljóða ákvörðun á afmælisárinu 2000 (að
hluta samkvæmt tillögu Ágústar Bjarnasonar) að gera fjóra félaga okkar að heiðursfélögum í tilefni 30 ára afmælis félagsins og 10 ára afmæli flugvallar og flugstöðvar.
Þeir eru Ólafur Sverrisson, Axel Sölvason, Ágeir Long og Birgir Sigurðsson.
Þessum mætu mönnum er þakkað fyrir framlag sitt til félagsins í gegnum
árin og fengu þeir afhentan heiðursskjöld á afmælisfagnaði félagsins þann 7.
apríl s.l.
![]()
![]()
Ný heimasíða í tilefni 30 ára afmælis félagsins
Í tilefni 30 ára afmælis félagsins hefur verið opnuð ný heimasíða á slóðinni http://www.thytur.is Síðan verður í vinnslu á næstu mánuðum og eru þeir sem hana skoða beðnir að hafa þetta í huga og benda okkur á það sem betur mætti fara.
![]()