Hér er hægt að líta yfir það helsta sem gerðist árið 2002 og var fjallað um hér á heimasíðunni.

Meiri fréttir af skipulagsmálum á Hamranesi
Búið er að senda bæjarverkfræðingi bréf vegna framkvæmda (smella hér til að lesa það) á Hamranesi. Beðið verður svara við þessu bréfi og þá sent bréf og kynningarbæklingur til allra bæjarfulltrúa til að upplýsa þá um þetta mál.

Fréttir af skipulagsmálum á Hamranesi
Eins og kom fram á aðalfundi félagsins 7. nóvember s.l. hafa félagsmenn verulegar áhyggjur af þeim framkvæmdum komnar eru í gang austan við okkar svæði á Hamranesi. Leigusamningur um svæðið var endurnýjaður á fundi með bæjarstjóra á árinu 1999 til 10 ára. Eins og komið hefur fram áður sendum við bréf  varðandi þessi mál til bæjarráðs á árinu 2000 (smella hér til að sjá bréfið). Svohljóðandi svar barst frá bæjarverkfræðingi; "Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur falið mér undirrituðum að svara fyrirspurn þinni um fyrirhugaðar lóðir í nágrenni flugvallar Þyts. Vinna við endurskoðun aðalskipulags stendur yfir. Í þeirri vinnu verður tekið á fyrirspurnum sem liggja fyrir um starfsemi á þessu svæði. Í aðalskipulagsvinnu er vani að hafa samráð við hagsmunaaðila eins og í þessu tilfelli. Afrit af bréfi þínu er komið til skipulagsstjóra og þ.a.l. vitneskja um áhyggjur ykkar. Virðingarfyllst. Kristinn Ó Magnússon, bæjarverkfræðingur." Í framhaldi af þessu óskaði skipulagsstjóri eftir fundi haustið 2001 þar sem við ítrekuðum okkar mál varðandi framtíðarstaðsetningu og öryggismál. Síðan berst okkur bréf frá bæjarverkfræðingi í október á þessu ári þar sem tilkynnt er um væntanlegt íþróttasvæði austan við okkar flugvöll á Hamranesi. Í sömu viku hefjast framkvæmdir og þá höf'ðum við samband við skipulagsstjóra með tölvupósti sem var svohljóðandi; "Hafnarfjarðarbær  - Skipulagsdeild B.t. Hafdísar, skipulagsstjóra  Málefni: Fyrirhugað íþróttasvæði austan við flugvöll Flugmódelfélagsins Þyts á Hamranesi. Stjórn Flugmódelfélagsins Þyts hefur uppgötvað að framkvæmdir séu hafnar við íþróttavöll austan við flugvöll félagsins að Hamranesi og að hann sé staðsettur nánast upp við svæði félagsins. Þetta hefur komið stjórn félagsins í opna skjöldu, þar sem á árinu 2000 var sent bréf til bæjarráðs Hafnarfjarðar þar sem varað var við hugmyndum um einhverskonar starfsemi í næsta umhverfi okkar svæðis og þar vísað til öryggismála. Þessi staðsetning á íþróttasvæðinu sem hefur verið valin, er enn alvarlegri fyrir það að hún er undir aðflugslínu að austur/vestur flugbraut svæðisins sem mest er notuð til lendinga. Í lendingu er yfirleitt mesta hættan á að eithvað fari úrskeiðis og því mjög hættulegt að fólk verði á þessum stað. Undanfarin ár hafa þau flugmódel sem notuð eru í félaginu stækkað og eru þau stærstu í dag með allt að þriggja metra vænghaf, eru allt að 20 kíló að þyngd og með allt að 8 hestafla mótorum. Í félaginu er mikið lagt upp úr öryggismálum og gilda mjög strangar reglur um alla umgengni á svæðinu og hvernig flugi er háttað.Við viljum minna á að við tókum við "ónýtu" landi sem var öskuhaugar Hafnarfjarðar. Ekið var 310 vörubílahlössum af mold á svæðið og samtals 1890 rúmmetrum af grús undir flugbrautir og til að gera veg frá hliðinu að bílastæðinu. Félagið malbikaði síðan 1130 fermetra af flugbrautum og stofnkostnaður brauta (framreiknað til 2002) er um um 3,6 milljónir króna. Einnig er við hliðina á flugvellinum 80 fermetra þjónustubygging og rafstöð í sérstæðu húsi við hliðina. Félagið endurnýjaði leigusamning félagsins til 10 ára á árinu 1999 með sérstöku samkomulagi við þáverandi bæjarstjóra. Einnig áttu fulltrúar frá félaginu fund með skipulagsstjóra Hafnarfjarðar þriðjudaginn 28. ágúst 2001 varðandi stöðu félagsins varðandi flugvöllinn á Hamranesi og hugsanlegar  breytingar á staðsetningu í framtíðinni. Okkur var sagt að verið væri að vinna aðalskipulag fyrir svæðið sem yrði líklega tilbúið fyrir áramót. Við lýstum vilja til að vera með okkar starfsemi á Hamranesi eins lengi og kostur væri og ef við þyrftum að fara, að okkur yrði þá úthlutað nýtt svæði sem næst Hamranesi (líklega aðeins sunnar í hrauninu). Stjórn félagsins óskar eftir viðræðum við Hafnarfjarðarbæ um þetta mál eins fljótt og nokkur kostur er. Með bestu kveðjum. Guðmundur G. Kristinsson formaður Flugmódelfélagsins Þyts." Í framhaldi af þessu hafði skipulagsstjóri samband við formann félagsins og sagði ekkert í stöðunni í skipulagsmálum sem ætti að verða til þess að við þyrftum að fara af okkar svæði næstu 10 árin. Ákvörðun um íþrótta- og æfingasvæði austan við okkar svæði væri tekin á pólitískum forsendum og hún mundi standa. Verið er að undirbúa bréf sem sent verður til bæjarverkfræðings sem svar við tilkynningu um þær framkvæmdir sem eru í gangi og þar óskað eftir að gengið verði skriflega frá leigusamningi um okkar svæði. Einnig er verið að undirbúa bréf til bæjarráðs til að upplýsa aftur (var gert með bréfi á árinu 2000) pólitíska fulltrúa í Hafnarfirði um alvöruna sem liggur á bak við þá ákvörðun að setja íþróttasvæði undir aðal aðflugslínu á okkar flugvelli.

Aðalfundurfundur Þyts verður í Garðaskóla fimmtud. 7. nóvember kl. 20:00
Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf: Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári, reikningar lagðir fram til samþykktar, fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda, skýrslur nefnda, kosning formanns samkvæmt ákvæðum 9.gr., kosning ritara, gjaldkera og meðstjórnenda samkvæmt ákvæðum 9.gr. (kosið verður þetta árið um formann, ritara og meðstjórnanada), kosning endurskoðenda, kosning í nefndir, tillögur og lagabreytingar (engar borist) og önnur mál. Ef einhverjir hafa áhuga á að starfa í nefndum eða koma inn í stjórn, vinsamlega hafa samband við Guðmund í síma 8931701.

Knattspyrnuvöllur að koma undir aðflugslínu úr austri á Hamranesi!!!
Stjórn félagsins frétti 18. október af framkvæmdum á knattspyrnuvelli austan við flugvallarsvæði á Hamranesi. Þetta kom verulega á óvart þegar litið er til þess að við sendum bréf (smellir hér til að sjá bréfið) til bæjarráðs um hættuna samfara módelflugi á svæðinu í kringum Hamranes. Í þessu bréfi var varað við því að setja golfvöll eða aðra starsfemi á svæðið í kringum okkar flugsvæði. Stjórn félagsins átti í framhaldi af bréfi frá skipulagsyfirvöldum í Hafnarfirði fund með þeim 28. ágúst 2001. Þar var rætt um okkar stöðu með flugvöllinn á Hamranesi og hugsanlegar breytingar á staðsetningu í framtíðinni. Okkur var tjáð að verið væri að vinna aðalskipulag fyrir svæðið sem átti að verða tilbúið fyrir áramót. Við lýstum vilja til að vera með okkar starfsemi á Hamranesi eins lengi og kostur væri og ef við þyrftum að fara, að okkur yrði þá úthlutað nýtt svæði sem næst Hamranesi (líklega aðeins sunnar í hrauninu). Einnig gerðum við athugasemdir við hæðina vestan við svæðið okkar í dag sem verulega hefur hækkað á undanförnum árum og "tippinn" fyrir hrossaskítinn vestan við okkur. Við spurðumst einnig fyrir um þann möguleika að fá rafmagn á Hamranes og var okkur vísað á Orkuveitu Suðurnesja í þeim efnum. Við sögðumst treysta því að Hafnarfjarðarbær yrði okkur innan handar með allar breytingar varðandi svæðið á Hamranesiog að Þytur yrði settur í forgang með nýtt svæði á undan nýjum aðilum sem ekki hafa verið með aðstöðu í hrauninu. Þessu máli verður fylgt eftir á næstu dögum og nýjar upplýsingar settar inn á netið.

Fyrsti félagsfundur vetrarins verður í Garðaskóla fimmtud. 3. október kl. 20:00
Á dagskrá er að fara yfir sumarstarfið, ræða hugmyndir um efni næstu félagsfunda og vetrarstarfins og undirbúningur undir aðalfund félagsins sem verður haldinn í nóvember. Þá láta þrír stjórnarmenn af störfum og því þarf að finna áhugasama aðila til starfa í stjórn á næsta starfstímabili. Þeir sem hafa áhuga geta skráð sig á fundinum.


Gullfalleg Ultimate fór í loftið með glæsibrag
Sunnudaginn 18. ágúst mætti Friðrik Ottesen með gullfallegan Ultimate sem hann keypti af Skyldi Sigurðssyni módelsmiði. Þetta er glæsileg vél, stór og falleg og búin tveggja strokka 3W 70 mótor sem skilar um 7 hestöflum. Flugtakið var gert í nokkuð miklum vindi, en það virtist ekki hafa nein áhrif á vélina. Það var tignarlegt sjón að horfa á þessa stóru aflmiklu vél fara í loftið og hreyfingarnar eins og um flugvél í fullri stærð væru um að ræða. Eftir nokkra hringi í öruggum höndum (pinnum) Friðriks var vélinni lennt aðeins utan brautar á túninu. Friðrik hló þá og sagðist hafa haldið að hún væri nær, en stærðin hafi blekkt sig í lendingunni.


Skemmtilegt flugmót á Melgerðismelum 10.-11. ágúst
Flugmódelfélag Akureyrar stóð fyrir sínu árlega flugmóti á Melgerðismelum helgina eftir Verslunaramannahelgi. Mikill fjöldi aðila mætti á svæðið frá Akureyri, Selfossi og Reykjavík og veðrið slapp fyrir horn með strekkings vindi. Mikið var flogið og langt fram á kvöld á laugardeginum þar til hefðbundið grill norðanmanna hófst. Maturinn var frábær og stemmningin í grillinu góð. Nokkrir flugmenn mættu líka á svæðið á stærri vélum og var því oft mikið um að vera í loftinu. Byrjað var að fljúga á sunnudeginum þegar menn vöknuðu og flogið fram á miðjan dag. Nokkrar vélar áttu harkalega snertingu við jörðina og rætt var um að norðanmenn yrðu á næsta ári að lækka jörðina um einn metra eða svo. Frábærlega var staðið að öllu hjá Akureyringum og margir gestir sóttu svæðið heim á laugardeginum. Það bregst ekki að þessi helgi er og verður alltaf toppurinn á sumrinu fyrir okkur flugmódelmenn. Hafið þakkir fyrir þessa frábæri helgi, Akureyringar.


Margir góðir gestir á Piper Cup móti 7. ágúst
Pétur Hjálmarsson stóð fyrir árlegu Piper Cup móti hjá félaginu og þangað mættu margir góðir aðilar með sínar vélar. Mikið var flogið og guli liturinn fyllti himinhvolfið. Ottó Tynes kom á "stóra" Cupinum sínum og tók nokkrar lendingar og sýndi skemmtileg tilþrif. Mótið var áfallalaust að mestu, en Pétur Hjálmars missti sinn Piper Cup undan vindi og laskaði lítillega. Allir þátttakendur fengu merki mótsins sem Pétur Hjálmarsson afhennti. Við þökkum Pétri fyrir þetta stórskemmtilega mót sem setur svip á starfsemi félagsins.

Stórflugmóti Einars Páls í Mosfellsbæ frestað til 14. september
Stórskalamótinu hans Einars Páls er frestað til 14. september og gert ráð fyrir að menn byrji að koma um kl. 11:00. Við hvetjum sem flesta með vélar yfir 2 metra í vænghaf til að mæta.

Lisflugmóti miðvikudaginn 17. júlí frestað um óákveðinn tíma
Samkvæmt mótaskrá er listflugmót á dagskrá 17. júli, en fresta verður þessu móti um óákveðinn tíma af óviðráðanlegum orsökum. Þegar mótið verður haldið mun verða sent út bréf til allra félagsmanna með nýjum lisflugskerfum.

Truflanir á Hamranesi herja á okkur
Tvær vélar fóru niður á sama staða og tíma eitt kvöldið. Náð var í skannan og komu þar fram truflanir sem eru ekki eðlilegar. Á næstu dögum verður haldið áfram að skanna og jafnvel óskað eftir að opinberir aðilar athugi hvað þarna er á ferðinni.

Fyrsta listflugsmót sumarsins breyttist í flugkomu
Allt var tilbúið kl. 18:00 miðvikudaginn 12. júní, en því miður voru fáir keppendur. Tveir flugu stærra prógrammið (Guðmundur formaður og Böðvar), en dómarar gerðu athugasemdir við uppsetningu flugkerfa og fanns þau erfið að skilja eins og þau eru á blöðunum. Þetta verður skoðað fyrir næstu keppni og líklega verður stærra prógrammið fellt niður og í staðinn tekið upp kerfi sem Birgir Sigurðsson setti upp á sínum tíma. Margir voru á staðnum að fljúga og veðrið var ótrúlega gott. Grillað var eins og er alltaf á listflugmótum og kostaði kr. 300 að borða pylsur og drekka gos. Böðvar kom með þríþekuna sína eftir viðgerð í prufuflug og tóks flugið frábærlega. Hann er búinn að skipta um lit á vélinni og má sjá myndir hér að neðan af þessari fallegu vél. Karl kom með Diabolo og flaug henni tvö flug. Þessi vél hafði áður flogið, en þetta var fyrsta flug eftir viðgerð. Vélin er stór og gífurlega falleg í loftinu, en mótorinn var með gangtruflanir.

Listflugsmóti frestað til miðvikudaginn 12. júní kl. 18:00 á Hamranesi
Menn hittast kl 18:00 og fara yfir flugkerfin og kl. 19:00 hefst síðan keppnin.

Listflugsmót og grillveisla miðvikudaginn 5. júní kl. 18:00 á Hamranesi
Menn hittast kl 18:00 og fara yfir flugkerfin og boðið verður upp á eldgrillaðar pylsur og gos fyrir kr. 300. Birgir Sigurðsson mun halda uppi röð og reglu í keppninni með aðstoð Skjaldar, Guðmundar og fleiri góðra aðila. Fyrst verður keppt í Byrjendaflokki og að honum loknum í Keppnisflokki I fyrir reyndari flugmenn. Hver þátttakandi flýgur þrjár umferðir og stigin reiknast eftir tveimur bestu umferðunum. Hægt er að nálgast bæði flugkerfin á heimsíðu Þyts undir fróðleikur (Rit um listflugkeppnir 2001) http://www.thytur.is , en athuga skal að leiðrétta þarf lið. nr. 10 í byrjendaflokki sem á að vera 360° velta. Einnig þarf að leiðrétta lið nr. 12 í Keppnisflokki I sem á að vera 45° uppleggur, 2 af 4 punkta velta og hálf velta og til baka í hvora átt.

Þytsmótið laugardaginn 1. júní kl. 10:00
Listflugsmót 5. júní kl. 19:00 á Hamranesi
Næsti viðburður á mótaskrá er Þytsmótið laugardaginn 1. júní á Hamranesi þar sem Pétur Hjálmarsson ætlar að sjá um glaðan dag með okkar hjálp!!! Þar á eftir verður listflugmót á Hamranesi sem verður miðvikudaginn 5. júní kl. 19:00. Kl. 18:00 verður kynning á listflugsprógrömmum sem á að keppa í, en þau eru tvö.

Dornier og Fokker á félagsfundi 9. maí
Fundarefni þessa fundar var að skoða eitt stórkostlegasta flugmódel sem smíðað hefur verið á Íslandi. Jakop er í þetta sinn með eitt stærsta og tæknilega stórkostlegasta módel sem sést hefur hér á landi. Þriggja metra langan Dornier með tveimur mótorum (einn að framan og einn að aftan) og skiptiskrúfubúnað á báðum. Mótorinn að framan er þar að auki með vendiskrúfu. Allan þennann búnað hefur Jakop smíðað sjálfur sem og einnig lendingarbúnaðinn sem er með vökvafjöðrun. Á fundinn kom einnig Richard með ótrúlega fallega Fokker tvíþekju og voru vængirnir á henni handmálaðir í litlum tíglum sem tók hundruði klukkutíma. Sérstaklega var gaman að sjá þessa tvo fulltrúa frá sitthvorri heimstyrjöldinni og þann tæknilega mun sem var á milli þessa tímabila. Látum myndirnar segja það sem vantar upp á.

Félagsfundi frestað um eina viku
Fundarefnið 3 metra langur Dornier með tveimur mótorum
Vegna óviðráðanlegra orsaka verður að fresta félagsfundi sem átti að vera fimmtudaginn 2. maí til fimmtudagsins 9. maí. Þessi síðasti fundur á vetrinum ætti samkvæmt venju að vera haldinn á Hamranesi, en vegna stærðar og umfangs á fundarefni verður fundurinn haldinn í Garðaskóla kl. 20:00. Við hvetjum alla áhugasama flugmódelmenn til að koma á fundinn og skoða eitt stórkostlegasta flugmódel sem smíðað hefur verið á Íslandi. Jakop hefur smíðað margar skemmtilegar vélar, en í þetta sinn er hann með eitt stærsta og tæknilega stórkostlegasta módel sem sést hefur hér á landi. Þriggja metra langan Dornier með tveimur mótorum (einn að framan og einn að aftan) og skiptiskrúfubúnað á báðum. Mótorinn að framan er þar að auki með vendiskrúfu. Allan þennann búnað hefur Jakop smíðað sjálfur.

02_4fund1.jpg (54266 bytes)02_4fund2.jpg (32864 bytes)02_4fund4.jpg (43105 bytes)02_4fund3.jpg (28620 bytes)

Svifflugur og fallegur Sukoi hjá Rafni
Fimmtudaginn 4. apríl var haldinn félagsfundur og þar var kynnt samstarfsverkefni nokkurrra svifflugmanna í þróun nýrrar svifflugu. Þessir aðilar eru Frímann, Hannes og Guðjón og hafa þeir sett saman mót til að steypa skrokk, og skurðarplötur til að skera út "foam" væng á eigin hönnun að svifflugu með 60" vænghafi. Áður hefur verið smíðuð sviffluga með 120" vænghafi og báðar eru afskaplega skemmtilegar að fljúga. Þessar svifflugur eru í sama flokki og hin heimsfræga Tragi sviffluga sem mikið hefur verið notuð í listflugskeppnum um allan heim. Þessi íslenska sviffluga er því hraðskreið og mjög góð fyrir reynda flugmenn til að fljúga listflug. Þetta framtak þessara mætu manna er dæmi um þá stöðu sem íslenskt módelumhverfi hefur, sem gefur oft ekkert eftir því besta sem gerist á heimsvísu.
Rafn Thorarensen mætti á staðinn með gullfallegan Sukoi með vænghaf upp á 215 cm sem hann hefur verið að smíða undanfarin ár. Vélin er búinn 3W 60 cc mótor sem gefur um 6 hestöfl og 22-10 skrúfu og verður búin reykkerfi. Í vélinni er síriti sem skráir hámarkshraða og hægt að lesa þær upplýsingar eftir að vélinni hefur verið lennt. Vélin er öll uppbygð úr balsa og krossvið og klædd með filmu nema vélarhlífin sem er sprautuð. Við óskum Rafni til hamingju með vélina og hlökkum til að sjá hana fljúga.

Vínarbrauðsmótið verður daginn fyrir Páskadag (31. mars)
Laugardaginn 31. mars (daginn fyrir páskadag) verður Vínarbrauðsmótið haldið, en þá verður um ár liðið síðan það fór síðast fram. Að venju verður það haldið í flugstöðinni á Hamranesflugvelli. Mótið hefst kl. 12:00, en þá mun Pétur Hjálmarsson setja það formlega. Að sjálfsögðu verður mótið haldið hvernig sem veðrið verður. Mótinu verður því ekki frestað. Þetta eru sömu reglur og gilda um vöfflumótið. Áríðandi er að menn mæti með vínarbrauð og kaffi á brúsa, og svo auðvitð módel ef veður leyfir. Félagsmaður, sem hefur óskað nafnleyndar, vill sérstaklega koma því á framfæri, að vínarbrauðin séu með miklum glassúr ;-)

Fróðlegur félagsfundur 14. mars
Haldinn var félagsfundur 14. mars og var vel mætt á fundinn. Sýnd var mynd frá módelklúbbi í Danmörku sem Haraldur Sæmundsson tók, en hann var búsettur þar um tíma. Farið var yfir fyrstu tillögu að mótaskrá sumarsins, sýndar myndir frá 3W listflugmóti í Þýskalandi og Pétur Hjálmarsson var síðan með fróðlegan fyrirlestur um "servó" og móttakara.

Félagsfundi fimmtudaginn 7. mars er frestað til 14. mars
Af óviðráðanlegum ástæðum er félagsfundi sem átti að vera 7. mars frestað til 14. mars. Fundurinn verður í Garðaskóla kl. 20:00.

Catalinan hans Sturlu er stórkostleg!!!!!!
Catalina1.jpg (36633 bytes) Catalina5.jpg (33349 bytes) Catalina4.jpg (33516 bytes) Catalina6.jpg (39580 bytes) Catalina3.jpg (33229 bytes) Catalina7.jpg (39830 bytes) Catalina2.jpg (40474 bytes)

Félagsfundurinn 14. febrúar 2002 var einn skemmtilegasti fundurinn í langan tíma. Sturla Snorrason mætti með Catalinuna sína og er þessi vél einstaklega falleg og stórkostlega vel smíðuð. Sýndar voru vídeómyndir af fyrsta fluginu og einnig eftir viðgerð á hjólastelli sem brotnaði í fyrstu lendingunni. Vélin er smíðuð eftir teikningum sem eru hannaðar og útfærðar af Sturlu og þessar teikningar einstakar. Vélin hefur vakið mikla athygli erlendis og er verið að skrifa og setja upp greinar um hana sem eiga að birtast í erlendum módelblöðum. Catalinan er með tveimur Quatra 35 mótorum og um fjórir metrar í vænghaf. Hún er með uppdraganlegum hjólabúnaði sem Sturla smíðaði sjálfur og einnig er hægt að lyfta flotunum sem eru í efri stöðu vængendar. Sturla segir að Catalinan sé mjög stöðug á flugi og þægilegt að fljúga henni. Við óskum Sturlu til hamingju með þennan gullmola sem er einstakur á heimsmælikvarða. Við hér á Íslandi stöndum greinilega stóru körlunum út í heimi vel á sporði.

Félagsfundur verður fimmtudaginn 14. febrúar kl. 20:00 í Garðaskóla - Sturla mætir með Catalinu
Annar félagsfundur Flugmódelfélagins Þyts verður í Garðaskóla Garðabæ fimmtudaginn 14. febrúar kl. 20:00. Á dagskrá er heimsókn Sturlu með sína stóru og gullfallegu Catalinu og mun hann kynna sögu vélarinnar, smíðina og hvernig er að fljúga henni. Einnig eru önnur mál á dagskrá að þessu lokunu. STJÓRNIN

Félagsfundi fimmtudaginn 7. febrúar er frestað til 14. febrúar 
Af óviðráðanlegum ástæðum er félagsfundi sem átti að vera 7. febrúar frestað til 14. febrúar. Fundurinn verður í Garðaskóla kl. 20:00.

Gamlar myndir - DC3 og synir Gunnars
doglasdc3.jpg (35518 bytes) gunnarsynir.jpg (32196 bytes)
Það er alltaf gaman að skoða gamlar myndir og hér má sjá DC3 vélina hans Sturlu og syni Gunnars Jónssonar að starta Saturn módeli. Ekki er vitað hvenær þessar myndir voru teknar, en báðar eru líklega teknar á Hamranesi. Gaman er að geta þess að sonur Gunnars Jónsonar var formaður Þyts um tíma.

Fyrsti félagsfundur Þyts á árinu 2002 tókst vel 

02_1fund1.jpg (214218 bytes) 02_1fund2.jpg (242024 bytes) 02_1fund3.jpg (25166 bytes) 02_1fund4.jpg (29317 bytes) 02_1fund5.jpg (32375 bytes) 02_1fund6.jpg (25872 bytes) 02_1fund7.jpg (25342 bytes)
Fyrsti félagsfundur ársins var haldinn í Garðaskóla 10. janúar 2002. Um 30 manns mættu á fundinn og margir höfðu tekið með sér módel. Þau módel sem komið var með voru af fjölbreyttum toga sem gerði þessa kynningu enn skemmtilegri. Menn kynntu hver sitt módel og svöruðu síðan spurningum. Myndir eru hér að ofan af öllum módelunum sem kynnt voru nema af Chipmunk (180 cm vænghaf með 120 mótor) sem Sigurgeir Ingimundarson var með og Diabolo (230 cm vænghaf og 60 cc 3W bensínmótor) sem Guðmundur G. Kristinsson kynnti. 

Fyrsti félagsfundurinn 2002 verður í Garðaskóla fimmtudaginn 10. janúar kl. 20:00 - Allir eiga að koma með eitt flugmódel
Fyrsti félagsfundur ársins verður í Garðaskóla 10. janúar kl. 20:00. Á dagskrá eru tvö málefni: (1) Félagsmenn kynna hver eitt flugmódel sem getur verið í kassa, í smíðum eða tilbúið. Hver eigandi segir nokkur orð um sitt flugmódel og svarar spurningum fundarmanna. (2) Önnur mál. Við hvetjum félagsmenn til að mæta og taka þátt í skemmtilegum fundi.

Midwest Extra 300 XS til sölu - Verð kr. 50.000 með mótor.
Sigurgeir er með til sölu Midwest Extru sem er tilbúin í loftið (bara að setja í servo og móttakara). Friðrik smíðaði þessa vél sem er um tveir metrar í vænghaf og það er búið að fljúga henni nokkur flug. Extran er útbúin með Zenoa 38 sem fylgir með vélinni. Hægt er að hafa samband við Sigurgeir í síma 895 3083 til að fá nánari upplýsingar.